Hugsunargangur Krumma
23.11.2006 19:16:46 / Raven08

Nýtt blogg!!!!

Komin með nýtt blogg, nenni þessu ekki lengur.....

Kíkiði endilega

www.krumminn.bloggar.is

Takk fyrir mig :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.10.2006 16:53:39 / Raven08

Loksins get ég skrifað eitthvað!!!

Jæja ok nú hef ég eitthvað að segja....

Ég er búin að vera að gera frekar mikið núna, ég mér eitthvað líf loksins... Í byrjun mánaðarins flúði ég úr borginni og skellti mér í bústað þar yfir heila helgi, bara ég og Pollý...

Það var svaka fínt, ég ferðaðist mikið, fór Gullfoss og Geysir, kíkti á Skógarfoss, Selandsfoss og Fljótshlíð. Þetta var svaka fínt og akkurat það sem ég þurfti. ;)

 

Helgina eftir það fórum við í vinnunni öll saman út að borða á Rauðará, svaka góð stemming og svaka fínn matur, vá þetta var æðislegt og Rauðará fær alveg topp einkun frá mér varðandi mat og þjónustu. Eftir matinn sátumst við upp þar sem við fengum okkur smá í aðra tánna og tjöttuðum, þar lenti yfirmaðurinn minn hún Helga í einhverjum manni sem var frekar leiðinlegur og hann var að spyrja hana að því hvar við ynnum og hún var fljót að svara, Erótísk Samskipti hf, ég get svo svarið fyrir það, við sprungum öll úr hlátri. :haha:

 

Helgina eftir það skellti ég mér norður þar sem ég fór að styðja hana mömmu áfram í karíókí keppninni sem var þar, rokkaði sveitastjórinn og allt það.

Það var svaka gaman þá, að vísu vann mamma ekki en henni gekk rosa vel og ég er ofsa stolt af henni. Þar var djammað langt fram á nótt, meira að segja var partý heima og mamma fór einnig á djammið!!! Believe it or not!!! 8|

Rétt komst heim á sunnudeginum, þvílíka færðin mar og ég á sléttum dekkjum... Ekki alveg að virka. :S

 

Seinustu helgi fór ég með Guðrúnu aðeins á djammið, eins og segji er ekki búin að stoppa, kannski engin furða að ég hef ekki bloggað lengi.... Kíktum á þjóðleikhúskjallarann  8)

Það var svaka fjör það kvöld, kynntist nýju fólki og svona, skemmtilegu og sætu fólki sem keyrir mikið....;)

 

 Í gær skellti ég mér til Dæju og við kíktum á Næsta Bar, kom heim um tvö, það var mjög fínt að hitta hana aftur, töluðum geggjað mikið saman og hlógum mikið, svoleiðis á það að vera.... :P

Og síðan í kvöld á að fara í útskriftarveislu til hennar Evu og síðan niðrí bæ býst ég við, kannski að mar hitti skemmtilega og sæta fólkið sem keyrir svona mikið. :haha:

 

Kveðja

Þunnur og þreyttur Krummi 8)


» 7 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 16:58:20 / Raven08

ipodinn minn...

Haldiði ekki að mín hafi verið soldið sniðug og fengið sér glænýjuann ipod..:haha:

Ég verð að viðurkenna að þetta er bara hrein snilld, ég er búin að setja fullt og fullt af lögum inn á hann og hlusta á hann eins og geðsjúklingur...

 Þetta munar rosalega að hafa þetta apparat þegar ég er að keyra norður, búa bara til ákveðinn lagalista og hlusta á hann á leiðinni til Hvk, þurfa ekki að vera alltaf að skipta um diska og svona vesen.  Þetta munar sko geggjað....;)

 Ég vil þakka Hannesi og Önnu fyrir að bjarga geðheilsu minni með því að kaupa ipodinn fyrir mig.:lol:

 Annars er allt gott að frétta hérna, pabbi er á landinu í smá tíma, fer aftur á mánudaginn næsta, planið er bara að reyna að hitta hann sem mest næstu helgi og reyna að eyða smá tíma með honum áður en hann fer aftur út. 

 Er bara alltaf í vinnunni og hérna í Hfj látandi mig dreyma um sætabrauðsdrenginn.;)

 Kveðja í bili

 Hrafninn í firðinum.


» 10 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 16:16:54 / Raven08

Júlí hjá mér.

Jæja ég sem ætlaði að vera svo dugleg við að skrifa í sumar..... Hhhhmmm það hefur eitthvað farið úrskeiðis hjá mér.:$

 

Í byrjun júlí fór ég norður og hitti pabba minn loksins eftir mjög langann tíma, það var ekkert smá yndislegt að hitta hann, mar er búinn að sakna hans ekkert smá mikið.  Ég er ekki að grínast en ég held að ég hafi bætt á mig 10 kílóum við fara þá norður, hann pabbi eldar svo geggjaðann góðann mat að mar getur ekki hætt að borða!! Bókstaflega, þar er kannski gott að ég var bara þarna yfir helgi því að ég hefði ábyggilega étið á mig gat...:^)

 

Það eru smá nýjar fréttir hérna, ég er hætt við að fara norður í skóla, yfirmaðurinn minn hjá Esso vill endilega halda í mig svo að hún bauð mér góðann díl sem ég gat ekki neitað og því ég verð áfram hér á höfuðborgasvæðinu í einhverntíma til viðbótar....

Það er kannski gott í sjálfum sér, ég er búin að eignast ágætis vini þarna niður frá og það hefði verið soldið súrt að fara skilja við þá í lok ágúst, en bara svona til þess að leiðrétta allann miskilning þá ætla ég að halda áfram í skóla en ekki alveg strax.;)

 

Ég var núna síðustu helgi líka fyrir norðan, fór á bryggjuhátíð á Drangsnesi og ball þar, svaka stuð....  Kom heim um hálf fimm og allt henni Hafrúnu að þakka, ef að hún hefði ekki verið svona góð þá hefði ég setið föst á Drangsnesi, hún var svo góð í sér að hún lét mig fá farið sitt aftur á Hólmavík og gisti í staðinn á Drangsnesi.  :haha:

 

Ég skellti mér á hestbak þarna fyrir norðann og það var geggjað, ég lá líka í sólbaði þarna og fékk smá lit, var ekkert smá ánægð....  Fór einnig upp á einhverja heiði þarna með mömmu og fleirum og við náðum að festa okkur í snjóskafli, það var líka ógeðslega gaman og fyndið.....:haha: Tók nokkrar myndir af því sem ég mun bráðlega setja hérna inn.

 

Núna er bara stefnan að reyna að safna smá peningi og kannski að eyða hluta af honum í ipod, það er svona smá pæling hjá mér.8|

 

Jæja verð að fara að hætta þessu núna og drífa mig til hennar Önnu minnar þar sem við ætlum að fara að fá okkur að borða saman og fínerí.

 

Bið að heilsa ykkur öllum.:haha:

 

 




» 5 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 16:59:49 / Raven08

Nýtt blogg!!!

Jæja nú er kominn tími á smá blogg....

Ég er flutt í Hafnarfjörðinn, komin á heimaslóðir eða svona nokkurn veginn, er flutt til hennar Guðrúnar og gengur það bara mjög vel, allavega veit ég ekki betur ;)

 Er búin að vera að vinna eins og geðsjúklingur, ætti að fá alveg híps mikið af peningum næst útborgað því að ég er búin að vera að taka svo mikla yfirvinnu að mér...:haha:

 Er enn ekki búin að heyra frá skólanum á Akureyri varðandi inngöngu eða stúdentagarðana... :$

 Pabbi er á leiðinni heim, loksins....  Verður í 3 vikur og fer síðan aftur, ætla þá að kíkja aðeins norður til þeirra og heilsa upp á hann og mömmu líka, ætla að reyna að koma þegar hamingjudagar verða þarna á Hólmavík :haha:

 Það gengur bara allt æðislega vel hjá mér, kíkti aðeins á djammið með Guðrúnu, Írisi og Önnu minni fyrir svolitlu síðan, það var feikna stuð, að vísu var ég fyrst til þess að kveðja partýið enda var ég búin að vera vakandi frá því 6 um morguninn, ehemm næst mun ég sko leggja mig áður en ég fer út á djammið ;)

 Lenti í svolitlu skringilegu um daginn og væri alveg til í að fá ykkar skoðun á þessu...

 Getur maður farið einn í bíó? 

 Ég fór út að borða um daginn með vinum mínum sem var bara allt í góðu nema það að ég fór að tala um að kannski ætti ég bara að kíkja í bíó eftir matinn því að ég nennti ekki að fara með þeim niðrí bæ, enda soldið veik.  Nema að þá fékk ég að heyra það hjá einni vinkonu minni að það gæti ég ekki gert, sko farið ein í bíó.  Þeir sem þekkja mig vita það að það eru ekki margir kostir handa mér, ég er á lausu og margir vinir mínir hafa ekki sama smekk og ég á myndum, hvað á ég þá að gera?  Bíða þangað til að myndinn kemur út á dvd í stað þess að dirfast að fara ein í bíó?

Veit ekki, ég er allavega ein af þeim sem er alveg sama hvort ég fari ein eða ekki, hef líka einnig sagt að ef að ég get ekki verið ein með sjálfri mér hvernig get ég búist við því að aðrir geti verið með mér... :lol: Þar að auki að þegar ég fer í bíó þá er ég ekki skoðandi yfir salinn og reyna að finna það út hverjir eru einir og hverjir ekki, ef að það eru einhverjir sem gera það þá finn ég eiginlega til þeim.....:P

Jamm svo er það, á næstunni er það bara að hafa það gott og kósý hérna í Hafnarfirðinum, vinna á fullu og jafnvel að reyna að plana smá spilakvöld og reyna að komast á kaffihús...  Hhhmmm ætli maður geti farið ein á kaffihús eða hvað?

 Og Begga mín, svo er það stefnan á næstu helgi að hittast, er það ekki?


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 16:25:24 / Raven08

Hello 2 u all.

Æ hvað það er alltaf mikið að gera hjá manni.....

 

Jæja, allavega er mikið búið að gerast, get þá loksins skrifað um eitthvað.  Ég átti afmæli í seinasta mánuði, voða gaman.  Guðrún og Guðrún voru svo góðar að baka handa mér köku og vera með svona smá “suprise” afmæli, það var voða sætt af þeim og ég var svaka ánægð, síðan eftir það þá var haldið niðrí bæ og fagnað Því að ég sé búin að lifa svona lengi.:lol:

 

Er búin síðan að vera á fullu í skólanum þar sem verkefnaskil voru og síðan próf alveg á fullu, var alveg að fara yfir um , sérstaklega þar sem prófin voru haldin í einhverjum húsnæðum sem ég þekki ekkert og var alveg viss um að ég myndi týnast og missa af prófunum.  :$

 

En ég held að mér hafi bara gengið bærilega, allavega er ég sátt.  Síðan er ég byrjuð að vinna hjá Esso, enn og aftur, er að vinna með þrælskemmtilegu fólki og er alveg viss um að þegar sumarið er búið að þá eigi ég eftir að sakna þess geðveikt. 

 

Ég er að fara að flytja núna á næstunni, er að fara í Hafnafjörðinn til hennar Guðrúnu minnar.  Síðan er ég búin að sækja um í Háskólanum á Akureyri og þá munu ég og Guðrún flytja í sumar eða í lok ágúst þar að segja, alveg hrottalega hlakkar mig til að komast úr bænum...... :haha:

 

Miklar breytingar í gangi og það er bara fjör, verð alltof þreytt á því að sitja bara á sama stað og gera ekkert neitt, maður á endilega að reyna að gera eitthvað nýtt og prófa nýja hluti meðan að maður er svona ungur, sértsaklega þar sem maður er ekki kominn með kall, börn og alla pakkann.;)

 

Síðan á bara að fara að safna pening á fullu, er búin að plana smá djamm með nokkrum úr vinnunni á næstunni, það verður fjör....

Enda hlakka geðveikt til!!!:haha::haha:

 

Jæja flutningur og læti á fullu, svo að ég mun ekki blogga alveg strax, ekki fyrr en ég er bín að flytja og koma mér fyrir, annars mun ég vera mun duglegri við þetta í sumar...   Vona ég.....:P

 

Jæja dúllurnar mínar, love u all og heyrumst.:haha:

 


» 16 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 17:07:52 / Raven08

Karlmenn.....

Jæja, nú geri ég eitthvað í þessu........

Ég er persónulega orðin þreytt á karlþjóðinni, þetta eru bjánar upp til hópa!!!!!

Ég hef lent í strákum sem hafa reynt við mig eftir að hafa verið með frænkum mínum, vinkonum mínum og sem versta er að mínu mati verið á föstu.

Í gær þá fór ég til Guðrúnar vinkonu að spila aðeins og hafa gaman með, ásamt Evu Rut.  Nóg með það nema seinna um kvöldið þá ákváðum við Guðrún að fara niðrí bæ og aðeins að slappa af, ekkert að leita eða neitt bara tvær vinkonur aðeins a chilla og hafa gaman.  Snemma um kvöldið stoppaði ungur maður fyrir framan borðið með tvo bjóra og byrjaði að senda sms, þegar það var búið þá skálaði hann við mig og labbaði burt.  Mér fannst það frekar sárt að horfa á eftir honum en kippti mig ekkert við það þar sem við vorum þarna aðeins til þess að hafa gaman og ekkert að vera að pæla í strákum.

Vitið menn, seinna m kvöldið kom þessi strákur aftur og settist hjá okkur.  Hann talaði mikið við okkur og sýndi mér soldinn áhuga, sem að mér fannst alls ekki slæmt.  Eftir smá tíma fór hann til þess að ná í vin sinn og þegar hann kom aftur settist hann við hliðina á mér og fór að tala við mig meðan að vinur hans sýndi Guðrúnu vinkonu mjög mikinn áhuga.:haha:

Loksins hugsaði ég!!!  Þarna var ég búin að finna sætan náunga sem hægt var að tala við, þetta var náungi sem var búið með tölvunám í HR og hafði geðveikan áhuga á því sem ég var að gera.....  Já ertu að læra uppeldis og menntunarfræði.  Við hvað geturu þá farið að vinna og hvernig menntun er þetta?  Er þetta blanda af félagsfræði og sálfræði eða eitthvað annað?  Hvað ætlaru svo að gera í framtíðinni og allt þar í kring.  Eins og ég sagði það var hægt að tala við hann um allt og hann var á fullu að gefa mér merki um að hann hefði áhuga á mér sem að mér fannst alls ekki slæmt, takandi í höndina á mér, daðra við mig og fleira.;)

Eftir dágóða stund þá kippir Guðrún í mig og bendir mér á hvað klukkan sé, hún var orðin ansi margt sérstaklega þar sem hún þurfti að fara að vinna eftir nokkra tíma, ég læt náungann vita að ég þurfi að fara því að ég fái far með vinkonu minni og hann stendur upp, þakkar fyrir kvöldið og kveður.  Áður en hann fer þá ákveð ég að vera frekar djörf og spyr hann hvort að hann sé til í að skiptast á númerum.....8|

Viti menn, hann horfir frekar skringilega á mig og segir svo.....

Fyrirgefðu en ég á eiginlega kærustu.....:frown:

Ef að þú átt kærustu þá áttu ekki að vera að daðra og gefa konum undir fótinn eins og það sé enginn morgundagur!!!!!!  Thats just plain nasty.

Eins og segji þá er ég búin að gefast algjörlega upp......  Ég nenni þessu ekki lengur.

Guðrún vinkona var alveg jafnheppin því að þessi vinur hans sem að virtist lofa svo góðu var eitthvað heilaskemmdur því að talaði ekkert um neitt annað hvað hann hataði dóp og hvað hann þoldi ekki uppdópað og drukkið lið....  Já þá er mjög sniðugt að vera á skemmtistað og vera sjálfur að drekka.:frown:

 

Það er voða sjaldan að maður rekst á karlmann sem að eitthvað er varið í, ef að það gerist þá er hann annaðhvort frátekinn eða hommi....

Ég held að ég láti þar við sitja að bara dreyma um draumagæjann, það er bara best.  Hann veldur mér allavega ekki vonbrigðum.:lol:

 

Ég verð samt að viðurkenna að hann fær plús fyrir að að segja mér það að hann eigi kærustu því að hann hefði alveg getað skipts á númerum og haldið framhjá henni, en hann gerði það ekki, hann fær plús fyrir það.

 


» 22 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 14:14:32 / Raven08

Farin......

Ætla bara láta vita að ég mun ekkert blogga núna á næstunni þar sem ég verð ekki heima.....

Lofa því að blogga um leið og ég kem heim sem verður kannski eftir viku...... 

Allavega þá heyrumst við seinna :)


» 16 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 15:53:31 / Raven08

Fleiri myndir

Bara að láta vita að myndirnar eru komnar aftur í lag og ég var að enda við að setja inn myndir frá því þegar ég fór með nokkrum vinum til Eyja á þjóðhátíð 2000 og 2001.......:haha:

Síðan er ég alltaf að bæta inn fleiri myndum svo að kíkiði endilega á  :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 02:52:44 / Raven08

Spilamennska

Þegar ég bjó í Vogunum á sínum tíma hjá afa og ömmu þótti það gömul og góð hefð að fjölskyldan kæmi saman á sunnudögum, drykki kaffi saman og spilaði kana.... :)

 

Sú minning mun lengi lifa í minni mínu enda mjög ánægjuleg..... :)

 

En upp á síðkastið hefur þessi hefð dottið upp fyrir, held ég að ástæðan fyrir því sé sú að fólk er að vinna mikið og margir úr fjölskyldunni hafa flutt út á land eða af landi brott... :$

 

Allavega þá er ég nýbúin að eignast nýja spilafélaga, þær Guðrúnu og Evu Rut og verð ég að viðurkenna það að spila við þær er feikna fjör þrátt fyrir það að keppnismanneskjan í mér er ekki alltaf að höndla það að vera dregin niður.... :evil:

En það er bara það sem gerir leikinn bara enn skemmtilegri og meira ögrandi, er það ekki?  Allavega þá virðast þær stöllur hafa mjög gaman að því þegar þær draga mig niður og hlæja ansi oft að því....  :evil:

 

Ég er bara enn að læra að anda inn um nefið, út um munninn, telja hægt upp á tíu og reyna að skilja það hvers vegna í andsk... þær biðja um kóng í einhverri sort sem þær eiga ekkert rassg... í!! :P

 

He he, samt er ekki annað hægt að segja að ég hafi lúmskt gaman að þessu, annars væri ég ekki til í að spila við þær.

 

Stelpur, hlakka til næsta spilakvöld hjá okkur  :haha:

 

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 16:19:26 / Raven08

Alltaf vandræði.

Þetta er alveg týpískt....

Loskins þegar ég er komin með myndir inn á síðun þá bilar það...

Er alveg að gefast upp á þessu bara.  Ég held að það sé búið að leggja niður síðuna meira.is sem að ég notaði fyrir myndirnar.

Ætla að reyna að skoða þetta betur og finna einhverja aðra leið til þess að setja upp myndir hérna.

En nóg með það, ég er byrjuð í átaki alveg á fullu, er í sporthúsinu með vinkonu mínum og ætla að vera ógeðslega flott og fín í sumar :haha:

Það er bara annars allt fínt að frétta héðan úr þessum bæ, er í skólanum á fullu, ræktinni á fullu og síðan er mar alltaf að reyna að vinna sér inn smá auka pening....   Veitir ekki af ;)

Annars þangað til seinna...

Bæjó.


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 10:00:57 / Raven08

Klukkuð!!!

jæja, ég var víst klukkuð svo að ég hendi þessu hérna inn fyrir ykkur til þess að lesa....

Have fun :)

4 störf sem ég hef unnið um ævina...

Jæja, hef verið í fiskvinnslu, í bakaríi og eldhúsi í Hagkap, verið hjá Sorpu og síðan má alls ekki gleyma Esso :P

 

4 bíomyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur...

Gömlu Star Wars myndirnar, Green Mile, Dumb and dumber og From dusk till dawn.

 

4 staðir sem ég hef búið á…

Vogar, Kópavogur, Bifröst, Garðabær.

 

4 sjónvarpsþættir sem eru í uppáhaldi...

Treshold, Lost, My name is Earl, House og svo margt margt fleira....

 

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum...

Mallorca, Danmörk, Nýfundaland, Írland.

 

4 heimasíður sem ég skoða daglega...

Ummm, hi.is, mbl.is, kbbanki.is og síðan allar bloggsíðurnar 8)

 

4 Máltíðir sem ég held uppá...

Jeminn eini, mér finnst allur matur svo góður...  Öööhh kjúklingabringurnar að hætti mömmu, piparsteik með piparostasósu og gratíneruðum kartöflum, skyr finnst mér ljúfengt og kjötsúpan hennar ömmu er æðisleg.

 

4 bækur sem ég hef lesið oft...

Ísfólkið, Harry Potter, Njála og Orðgnótt.

 

4 staðir sem ég myndi vilja vera á núna...

Portúgal, Bretland eða Írland, Ítalía og Hólmavík að sjálfsögðu ;)

 

4 sem ég ætla að KLUKKA!!!

Arna, Erna Dóra, Habba og Begga mína :haha:



 



 



 



 



 



 



 



 



 


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 22:44:21 / Raven08

Myndir Myndir

Loksins er ég búin að setja inn nokkrar myndir af mér og mínum..... Það er þarna neðst niðri undir Myndum,  of course... Ef þið takið ekki eftir því þá er það ykkar vandamál :P

Vil samt bara benda á að þetta er enn í vinnslu og það á eftir að bætast inn fleiri myndir á næstunni :haha:

Með von um betri tíð og blóm í haga.....

Kveðja

Ég.


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.01.2006 15:56:37 / Raven08

Stór kjaftur.

Bara svona  aðeins smá, 

Tékkið á þessu

Þá skiljiði kannski útafhverju ég er svona drullu hrædd við þessi kvikindi!!!!!

http://www.marktheshark.com/html/amazing_10.html


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.01.2006 21:50:56 / Raven08

Smá blogg fyrir Hafrúnu ;)

Jæja, er ekki kominn tími til þess að blogga aðeins....

Mamma mín á afmæli í dag, innilega til hamingju með daginn mamma mín :haha: 

Ég er byrjuð í skólanum aftur.... voða gaman, er bara í tveimur fögum og er alltaf fyriri hádegi , plús það að ég er í fríi á föstudögum :P  Algjör lúxus....

Samt líka voða fáránlegt því að ég er bara með 9 einingar :S Þetta er eitthvað voðalega fáránlega skipulagt þarna hjá þeim í uppeldis og menntunarfr.  Fór til námsráðgjafa til þess að kvarta aðeins yfir þessu og ég var ekki sú fyrsta sem gerði það fékk ég að heyra.

Ætla að skipta yfir í mannfr. næsta haust svo að ég get tekið eitthvað auka í mannfr. eða ég get reynt að fá mér vinnu eftir hádegi og einbeitt mér bara að þessum tveimur fögum...

Er að hallast að þessu með vinnuna ;)

Annars búið að vera voða gott og fínt hjá mér, búin að vera á Hólmavík voða mikið, eignaðist lítinn sætan rauðhærðan frænda sem er algjört krútt og nefndi ég sætur?  Hann er æðislega sætur :haha:  Fór í skírn hjá Guðrúnu vinkonu sem er nýbúin að trúlofa sig.   Til hamingju Guðrún og Danni :haha:  Strákurinn þeirra er líka æðislega sætur og heitir því flotta nafni Jón Arnar Filippus Daníelsson... Eða nei bara Jón Arnar Daníelsson..... Smá misskilningur í kirkjunni :P

Þær stöllur Guðrún og Guðrún eru að pæla að skreppa til Danmerkur í sumar í tvær vikur og Guðrún bauð mér með....  Já..... Spurning... ;)  Ef ég fæ góða vinnu þá er aldrei að vita....

Annars allt fínt að frétta, allt gott bara..... Þarf að fara að hafa samband við fólk og hitta það...  Þar á meðal þú Begga mín....  Orðið of langt síðan að ég hitti þig skvís og við þurfum að bæta úr því :D

Annars bið ég voða vel að heilsa öllum og vonandi líður ykkur jafn vel og mér :lol:

Kveðja ég.


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Leitarbox